Message | Sæl vinkona.
Allt er gott þessa dagana, lífið bara nokkuð ljúft og ég tek því opnum örmum enda vel tímabært. Sólin bakar okkur frónarbúa þessa dagana og það hentar ágætlega þegar maður er loks byrjaður að stunda einhverja útivist; hjólið er komið í notkun og skokkið batnar (hægt og rólega, en þetta kemur).
Við ætlum bráðum að halda annað Indian night, Sultan Shagalot returns! Þín verður sárt saknað þá en við skulum senda þér myndir.
Það var löngu kominn tími á kveðju úr starengi, við söknum þín öll.
Með bestu kveðju, Gummi, Hrabba og Sófinn. |